Er það vegna leiðarans, spyrja flestir sem heyra að stjórnarformaður Blaðsins rak mig á dyr í morgun. Ekki veit ég það, á bágt með að trúa að svo sé.
Hér að neðan er samantekt vegna ákvörðunar um að vísa mér á dyr og þar á eftir er leiðarinn, sem kannski rak stjórnarmennina til að reka mig á dyr.
Sigurður G. Guðjónsson hefur sagt mér að Kristinn Björnsson hafi brugðist illa við fréttum af ráðningu minni á Blaðið. Kannski hafa fleiri brugðist illa við.
Athugasemdir
Getur einhver útskýrt fyrir mér af hverju það er ekki minnst einu orði á allt þetta mál á visir.is? Ég leitaði og leitaði og fann ekki neitt...
Davíð (IP-tala skráð) 15.12.2006 kl. 20:42
Ég get ekki sagt annað en farið hefur fé betra. Ég ætla að vona að Blaðið náið að rétta úr kútnum eftir að þú hefur komið því niður á "DV" stall.
Heiðar Birnir, 15.12.2006 kl. 23:00
Æ! ágæti Sigurjón! farðu betur yfir orðaval og stafssetningu áður en þú sendir texta út á blogggið þitt.
Kv
þórarinn Guðjónssson
Þórarinn Guðjónsson (IP-tala skráð) 16.12.2006 kl. 02:13
Þórarinn Guðjónsson: Þú vilt að Sigurjón fari betur yfir stafsetningu í færslum sem hann setur inn á bloggið sitt en stafsetur það svona: "stafssetningu"!?! Þetta hlýtur að vera ein fyndnasta umvöndun í athugasemd á bloggi sem ég hef séð.
Andrés Jónsson (IP-tala skráð) 16.12.2006 kl. 14:01