Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur sagt það mistök að lýsa yfir stuðningi við innrásina í Írak. Það vissu svo sem allir, en hitt er merkilegra sem Jón hefur sagt, að ákvörðunin hafi verið tekin af Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni án alls samráðs, jafnvel án samráðs við aðra í ríkisstjórninni. Þessu hefur svo sem oft verið haldið fram. Ráðherrar hafa ekki staðfest gruninn en nú hefur formaður Framsóknarflokksins gengið fram fyrir skjöldu og viðurkennt misnotkun tveggja manna á íslensku þjóðinni og kjörnum fulltrúum hennar. Að þeir hafi ekki einu sinni hirt um að ræða við utanríkismálanefnd Alþingis sýnir virðingu þeirra fyrir þingræðinu. Er of gróft að segja að þeir hafi niðurlægt þingið?En fyrst Jón Sigurðsson er byrjaður að tala með þessum hætti er ekki úr vegi að leita fleiri svara hjá honum. Þess vegna er spurt: Kæri Jón, getur þú upplýst hvaða umræður voru í ríkisstjórn áður en samþykkt var að leggja fram frumvarp um ofureftirlaun þeirra Davíðs og Halldórs og nokkurra annarra? Vissulega varst þú ekki í ríkisstjórn þá, Jón, ekki frekar en þegar þeir félagar settu okkur á lista viljugra innrásarþjóða. Þú kannt að verða þér úti um svörin og hefur aðstöðu til þess. Má vera, einsog svo marga grunar, að Davíð og Halldór hafi átt fundi með forystumönnum stjórnarandstöðuflokkanna áður en málið var kynnt í ríkisstjórn og samið um framgang þess þar, eða var það kannski aldrei kynnt í ríkisstjórn, eða kannski aldrei rætt af öðrum ráðherrum eða við aðra ráðherra? Má vera, kæri Jón, að tveir menn hafi ekki aðeins lýst yfir stríðsstuðningi okkar allra, heldur hafi þeir líka upp á sitt eindæmi skammtað sér ríkuleg eftirlaun?Kæri Jón, það er eitt enn. Má vera að fjölmiðlafrumvörpin, þau fyrstu, hafi verið sama marki brennd? Þar hafi tveir menn, það er Davíð og Halldór, þrykkt málum áfram án þess að leita samþykkis í þingflokkum og eða í ríkisstjórn? Má það vera?En fyrst þú hefur upplýst okkur um að ekkert samráð var haft áður en stuðningi var lýst yfir við innrásina í Írak, langar marga að vita hvað þér þykir um þá samflokksmenn þína, og núna nána samstarsfmenn, sem hafa til þessa ekki viljað segja söguna einsog þú gerir nú. Kæri Jón, má vera að þér þyki það í lagi, eða kalla fyrri svör þess fólks á nánari skoðun? Þar sem þú hefur lýst því yfir að ranglega hafi verið staðið að samþykktinni á sínum tíma, væri gott að vita hvort þeir sem ekkert sögðu og ekkert gerðu beri ekki líka ábyrgð. Var ekki rétt af því fólki að segja eitthvað, mótmæla, kvarta undan framkomu þeirra félaga Davíðs og Halldórs? Er ekki ábyrgð fólgin í aðgerðaleysi ráðherra? Hvað finnst þér um það, kæri Jón?
Athugasemdir
Góð grein. Það versta við þennan ömurlega flokk er að ekki bara eru þeir að sanka að sér opinberar eigur og selja vinum og vandamönnum heldur er Framsókn með tangarhald á Borginni í krafti eins manns, Björn Inga, manninn sem enginn kaus en er samt allsráðandi. Hvílíkur brandari og hvílík hneysa. Valdasjúkasti maður Íslands.
Sigurður Svan Halldórsson, 30.11.2006 kl. 19:59

Mér finnst þétta röng afstaða
Auðvelt að vera vitur eftirá - en varla mikil reisn í því. Halldór og Davíð gerðu skyldu sína þegar þessi ákvörðun var tekin um að standa að baki meirihluta Nato þjóða - annað hefði verið eins og við værum að segja okkur úr Nato. Þetta var ákvörðun um að leyfa afnot af Keflávíkurflugvelli en nánast allur kostnaður var þá greiddur af USA og Nato við völlinn. Gátum við þá bannað þeim að millilenda hér? Er þetta ekki einn alsherjar misskilningur. Halldór og Davíð voru aldrei að samþykkja neina stríðsyfirlýsingu þjóðarinnar. Þeir voru að samþykkja afnot af flugvellinum og leggja fjármuni í hjálpar og uppbyggingarstarf
Þetta var sem sagt rétt ákvörðun - og lögleg ákvörðun. Allt tal um "ólöglega" ákvörðun er bara bull. Ráðherrar fara með framkvæmdavald að fullu í þessu tilfelli - enda sjá allir sanngjarnir menn - að ekki var langur tími til vera með hringl í málinu - enda báðir þessir menn traustir og áræðanlegir og gerðu slyldu sína. Þeir sem hafa gaman af að sparka til þeirra - eftir að þeir hættu störfum - lýsa bara eigin inræti en ekki þessu málefni.
Forsendur fyrir ákvörðun Bandaríkjamanna um innrás - byggðu hins vegar á röngum upplýsingum - þetta vitum við í dag - en vissum ekki þá - ekki heldur þeir sem þykjast hafa vitað það þá og láta ei s og einhver Dr. alvís - eftirá!. Rangar upplýsingar voru m.a. upplýsingar frá Al-kaída - sem viljandi komu á framfæri röngum upplýsingum til þess að koma "góðu til leiðar" - þeir vilja jú bara sem stærstan blóðvöll - er það ekki augljóst?
Svo er rétt að muna að orðið "fyrirgefning" er ekki til í Kóraninum. Ef þú stelur á þessu svæði - er höggvin höndin af. Ef þú gerir eitthvað verra - fýkur hausinn. Svona er þessi menning. Al-kaída vill að sem flestir hausar okkar "villutrúarmanna" fjúki sem fyrst. Er það ekki kjarni málsins. Fleiri hausar í færi - því betra - finnst þeim. Ég get svarið að ég á erfitt með að skilja þessa menningu - en munum samt að "í húsi guðs eru margar vistarverur" og við höfum umburðarlyndi og við getum fyrirgefið - en geta þeir það?
Kristinn Pétursson
Kristinn petursson (IP-tala skráð) 1.12.2006 kl. 00:49

Kristinn petursson (IP-tala skráð) 1.12.2006 kl. 00:50