Það eru svo sannarlega fleiri en Baugsmenn sem kvarta undan störfum ríkislögreglustjóra og hans manna. Greinar Kristins Bjarnasonar hæstaréttarlögmanns og Jóns Þ. Hilmarssonar löggilts endurskoðenda um mál Gunnars Arnar Kristjánssonar eru merkilegar og tilfinningin sem vaknar við lestur þeirra er merkileg, hvernig má þetta vera? Hér er gripið í grein Jóns: Niðurstaða undirréttar og Hæstaréttar var að vonum sú að allur málatilbúnaður ríkislögreglustjóra var óásættanlegur og féll sýknudómur í undirrétti en Hæstiréttur vísaði málinu frá dómi vegna þess að rannsókn og ákæra voru með þeim hætti að málið var ótækt fyrir dóm.Þetta er bara lítið sýnishorn. Með starfsháttum sínum hefur ríkislögreglustjóri og hans menn brotið gróflega á Gunnar Erni, þeir hafa brotið gegn ákvæðum stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu. Í heil þrjú ár hefur Gunnar Örn Kristjánsson mátt búa við það að sæta ákærum eða sökum um að hafa gerst brotlegur í starfi sínu. Vegið var að heiðri hans og sóma og honum og hans fólki gert erfitt fyrir. Vegna þess að þeir sem fóru með ákæruvaldið, sem er afar mikið vald, voru ekki starfi sínu vaxnir. Málið hefur verið fellt niður og enginn dómur verður kveðinn upp. Þess vegna hafa sumir þeirra sem nærri rannsókninni komið stráð kornum efasemda um áægti Gunnars Arnar, smekkleysan virðist engin takmörk hafa. Það er að vonum sem spurt er hvort ekki verði að gera ráðstafanir svo borgarar þurfi ekki að óttast lögreglu sem starfar með þessum hætti. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir: Eins og lögregla hagaði rannsókn skorti þannig mjög á að hún næði því takmarki, sem mælt er fyrir um í 67. grein laga nr. 19/1991.Báðir tveir, Kristinn og Jón Þ. færa sterk rök fyrir því að lögreglan hafi verið viss um sök Gunnars Arnar við upphaf rannsóknarinnar, hafi verið búin að gefa sér sök og hagað störfum samkvæmt þeirri vissu.Mér var bent á, hér á þessari síðu, að ekki sé rétt að tala um vanhæfni ríkislögreglustjóra, réttara sé að segja óhæfni. Það er eflaust rétt ábending.Grein Kristins birtist í Mogganum á mánudag og grein Jóns Þ. í Mogganum á þriðjudag. Það er ekki bara í Baugsmálinu sem ríkislögreglustjóri rennur á svellinu. Hann gerir það víðar og mál Gunnars Arnar er dæmu um óhæfni. Eftir situr alvarlegt mál, en það er aðförin að Gunnari Erni og eflaust hefur verið erfitt fyrir hann að hafa stöðu grunaðs manns í þrjú ár, í máli sem var aldrei dómtækt og aldrei tókst að sanna nokkra sekt. Valdið er vandmeðfarið.
Flokkur: Bloggar | 21.12.2006 | 10:03 (breytt kl. 10:03) | Facebook
Athugasemdir
Sæll vertu, finnst þér ekki kominn tími fyrir annað áhugamál en málarekstur Baugs og embætti ríkislögreglustjóra. Mér finnst eins og þú stingir varla niður penna öðruvísi en tala vel um Baug og illa um lögguna. Það veit öll þjóðin þína skoðun á þessum málum. Er ekki hægt að velta öðrum steinum við. Af nógu er að tak í þjófélagi okkar, líka góðum hlutum. Mér finnst t.d. nýr félagsmálaráðherra standa sig afarvel, (er ekki framsóknarmaður) Það er nóg komið af svartnættisrausi. Hafðu það gott kallinn og gangi þér vel.
Val (IP-tala skráð) 21.12.2006 kl. 13:28
Ég er nú bara ekki endilega sammála síðasta ræðumanni. Ísland hefur alveg meira en nógu marga sem fjalla ekki um nein mál lengur en 5 mínútur, sem leiðir auðvitað til þess að maður kemst upp með hvað sem er, svo lengi sem það er dregið nógu lengi svo fólk hætti að skrifa um það. Það er hreint og beint bara ekki gott og því finnst mér ánægjulegt að lesa skrifin hér. Svo ekki sé minnst á það að hann skrifar alls ekki bara um þessi mál og eins það að hvað ríkislögreglustjóra málið varðar þá er það bara það stórt að það hefur ekki ennþá fengið þá umfjöllun sem það á skilið.
Það er alltof mikið af svona fólki í "náðugum störfum" ennþá í dag. Leifar gamla kerfisins sem, því miður, flest það fólk sem á þingi er virðist vilja viðhalda.
Kristján (IP-tala skráð) 22.12.2006 kl. 10:49