Lög­reglu­for­ing­inn og sið­ferð­is­mörk­in

Lög­reglu­for­ing­inn Arn­ar Jens­son skrif­ar grein í Morg­un­blað­ið í gær þar sem hann strá­ir efa­semd­um um heið­ar­leika Blaðs­ins. Til­efn­ið er frétta­út­tekt Blaðs­ins um sér­tæk­ar að­ferð­ir lög­regl­unn­ar. Arn­ar er þess full­viss að frétta­út­tekt­in hafi ver­ið unn­in til þess eins að draga úr gildi hans sem vitn­is í Baugs­mál­inu. Rök lög­reglu­for­ingj­ans eru tær og klár, rit­stjóri Blaðs­ins er bróð­ir manns sem hef­ur „hald­ið ut­an­um fjöl­miðla­fyr­ir­tæki Baugs”. Frek­ari sann­an­ir virð­ist lög­reglu­for­ing­inn ekki þurfa, sest nið­ur og full­yrð­ir á prenti að þann­ig sé þetta. Blað­ið hafi ver­ið not­að af Baugi til að rýra trú­verð­ug­leika Arn­ars. Sé það rétt hjá Arn­ari að Blað­ið hafi með ein­hverj­um hætti opn­að dyr efa­semda, þá er það jafn ljóst að Arn­ar gekk inn um dyrn­ar, óboð­inn, með grein sinni sem reynd­ar ger­ir það helst að kalla á spurn­ing­ar og svör. Svör­in hef­ur hann en spurn­ing­arn­ar hver sem les.Arn­ar á að minnsta kosti tvo fé­laga. Hann not­ast við þá nafn­lausa í grein sinni og báð­ir eru þeir viss­ir um ann­ar­leg­an til­gang Blaðs­ins. Ann­ar þeirra er blaða­mað­ur og hann sagði lög­reglu­for­ingj­an­um að það væri aug­ljóst að frétta­skrif Blaðs­ins, sem nátt­úr­lega eru Baugi full­kom­lega óvið­kom­andi, væru til þess gerð að varpa rýrð á Arn­ar. Sá blaða­mað­ur sem þann­ig tal­ar mið­ar vænt­an­lega út frá eig­in sið­ferð­is­mati og þess vegna er knýj­andi að vita hver hann er og hvar hann starf­ar, til þess að les­end­ur geti var­að sig á hon­um. Blaða­mað­ur sem læt­ur stjórn­ast af fólki og skrif­ar frétt­ir í þeim til­gangi sem Arn­ar og vin­ur hans halda er vond­ur blaða­mað­ur og hann ber að var­ast. Þess vegna er nauð­syn að frétt­ist hver hann er.All­ar til­gát­ur Arn­ars Jens­son­ar eru meira en sér­stak­ar. Það eitt er svo sem í góðu lagi. Hitt er al­var­legra að ætla má að það sið­ferð­is­þrek sem hann ætl­ar öðru fólki sé sótt í hans eig­in við­mið. Að hann lát­ist stjórn­ast. Fyr­ir til­vilj­un heyrði ég rit­höf­und­inn Hall­grím Helga­son svara spurn­ingu um hvaða mál séu verstu mál nú­ver­andi rík­is­stjórn­ar. Hall­grím­ur hóf upp­taln­ing­una á þess­um mál­um: Baugs­mál­ið, Ír­aks­mál­ið... Má vera að rit­höf­und­ur­inn hafi rétt fyr­ir sér að Baugs­mál­ið, sem var alls ekki helsta mál­ið í frétta­út­tekt Blaðs­ins, hafi all­an tím­ann ver­ið pól­it­ískt og Arn­ar og aðr­ir í lög­regl­unni hafi ver­ið þær tusk­ur sem þeir ætla öðr­um að vera. Dav­íð Odds­son sagði eitt sinn að ef Baugs­mál­ið væri pól­it­ískt myndu dóm­stól­ar bara henda því, sem þeir og gerðu.Skrif lög­reglu­for­ingj­ans og þær kröf­ur sem hann ger­ir til sönn­un­ar­færslu varpa kannski ljósi á smán­ar­lega út­reið mála hans fyr­ir dóm­stól­um, svo sem ein­sog Mál­verka­föls­un­ar­máls­ins og Baugs­máls­ins. Brýnt er að Arn­ar og aðr­ir í hans liði hafi í huga hversu óg­ur­legt vald þeim er fal­ið og þess er kraf­ist að þeir fari vel með vald­ið og von­andi er Arn­ar oft­ast kröfu­harð­ari við sjálf­an sig en hann var í Morg­un­blaðs­grein­inni. Hvern­ig sem Arn­ar læt­ur skal hann aldr­ei kæfa um­ræðu um vinnu­brögð lög­reglu. Til þess eru fjöl­miðl­ar of sterk­ir og sjálf­stæð­ir, þrátt fyr­ir hið eitr­aða peð, hinn veik­gerða blaða­mann sem er vin­ur lög­reglu­for­ingj­ans. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það ekki rétt hjá mér Sigurjón, en ég skildi Arnar Jensson þannig að blaðamaðurinn sem hann vísaði í væri blaðamaður á Blaðinu? Mér hefur sýnst sem þú forðist að ræða það?

Annars er það synd með Arnar Jensson. Hann kemur vel fyrir og er oftast sannfærandi í umræðu um lögreglumál en svo er einsog það slái úti fyrir honum þegar mikið liggur við. Þannig var það með gagnrýni hans á Ingibjörgu Sólrúnu þar sem hann skammaði fjölmiðlafólk Kastljóssins fyrir að fara illa með rökfærslur og svo í sama orði skildi ekki, eða snéri útúr rökfærslum Ingibjargar í Baugsmálinu. Rök hennar um 'andrúmsloft' voru sögulegs eðlis og svipuð þeim sem eru notuð í USA í málefnum rasista sem skapa ákveðið andrúmsloft þetta skildi Arnar ekki.

Ég á bágt með að trúa því að Skúli Helgason hafi haft í hótunum við Blaðið en reiði vinstri manna gagnvart Blaðinu beinast væntanlega að framkomu Andrésar Magnússonar sem skrifaði nafnlausan róg  og níð um Samfylkingarfólk,  dag eftir dag í Blaðinu í föstum dálkum, en það reyndar breyttist töluvert þegar þú tókst við og þú átt virðingu skilið fyrir það. 

Ljótusta nafnlausa níðið var um Ólínu Þorvarðar fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar þegar allt stefndi í að meirihlutinn á Ísafirði væri fallinn og nafnlaust níð (væntanlega eftir Andrés M.) birtist í Blaðinu um hana (og ekki eftir hafandi). Eitthvað það ljótast sem ég hef séð í íslenskri blaðamennsku nokkru sinni og hún var ekki einu sinni í framboði (en slúðrað um að hún yrði bæjarstjóri)

Skapaði þetta Blaðinu virðingu fyrir vestan?

Andrés Magnússon hefur rangtúlkað skoðanakannanir skipulega frá upphafi Blaðsins, (í samkór með Mogga og x-D) í þeim tilgangi að koma höggi á Samfylkinguna og Ingibjörgu Sólrúnu. Hann hóf árásirnar þegar Samfylkingin var yfir kjörfylgi en þá átti I.S. að vera ómöguleg því fylgi hafði minnkað miðað við fylgið í kringum formannskjörið! (sem var algjörlega einstakt fylgi). Hann horfir framhjá því að Ingibjörg var í forsætisráðherraefni flokksins þegar fylgið rauk upp! Verri er þó rógurinn um hana, t.d. tókst honum að saka hana um að svíkja nær öll framboðsefni flokksins fyrir borgarstjórakosningarnar á einhvern hátt. Sóðaskrif hans eiga ekkert skylt við blaðamennsku.

Níðskrif Andrésar undir nafnleysi og endurreisn Staksteina og yfirtaka Heimdallar á samsvarandi dálki í Fréttablaðinu eru engar tilviljanir. Þrír dálkar. Sama röddin. Tveir á einu skoðanasíðu blaðanna. Markvisst í samkór með Sjálfstæðisflokknum. Finnst þér skrýtið að einhverjir séu reiðir?

Við bætist að Kolbrún Bergþórs hefur skrifað slúðurgreinar um sama stjórnmálaflokk sem væru ekki sæmandi smástelpu. Í ótal greinum hennar gætirðu ekki fundið ein einustu rök, þó þú leitaðir með rökfræðingi. en fjölmargar ósmekklegar árásir. Þetta er fortíð blaðs sem er að hálfu í eigu nútíma flokksblaðs Sjálfstæðisflokksin. Þessu þarftu að mæta.

Meðhöndlun Fréttablaðsins á upplýsingum, könnunum og öðru, var yfirleitt til fyrirmyndar þegar þú varst þar við stjórn, en þú hlýtur jafnframt að þurfa að mæta ljótri fortíð Blaðsins í þeim efnum.

Þorvaldur Logason (IP-tala skráð) 16.11.2006 kl. 23:23

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband